Við Hólsveg 7 á Eskifirði stendur Efri Hóll, hlýlegt einbýlishús sem reist var árið 1916. Húsið er nú til sölu á 49,9 milljónir króna. Því hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina og það endurnýjað að talsverðu leyti, að því er fram kemur í sölulýsingu. Á aðalhæðinni eru tvær samliggjandi stofur og úr eldhúsinu má njóta útsýnisins yfir morgunkaffinu....