Frumvarp um bókun 35 er á dagskrá í utanríkismálanefnd í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður málið afgreitt í dag.Frumvarp utanríkisráðherra um innleiðingu bókunar 35 var lagt fram í september 2026 og fyrstu umræðu lauk í október, en málið fór þá til utanríkismálanefndar. Þetta er í fjórða sinn sem frumvarp um málið kemur fram á þingi.Í frumvarpinu er lagt til að sú regla verði lögfest að ef lagasetning sem byggir á EES-samningnum og önnur lög stangast á gildi þau fyrri, nema Alþingi hafi tekið skýrt fram að svo sé ekki.Grímur Grímsson formaður utanríkismálanefndar staðfestir að málið sé á dagskrá.„Við erum með fund núna klukkan hálf 10 og þá verður bókun 35, eða mál nr. 134 sem varðar breytingar á lögum um Evrópska efnahagssvæðið það verður á dagskrá.“Hann vildi þó ekkert segja