Sökktu einu rússnesku skipi og löskuðu annað

Úkraínskir drónar sökktu rússnesku herskipi og löskuðu annað úti fyrir ströndum Líbíu. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, staðfesti í dag að leyniþjónusta og her lands síns hefði skotið sjö drónum að skipunum.Rússneska korvettan Merkury sökk. Hún var ný, byggð 2023 eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Hitt skipið var Angara, sem Rússar notuðu til vopnaflutninga að sögn Zelenskys. Hann segir Úkraínumenn einnig hafa skotið niður Ka-27 herþyrlu Rússa.AFP-fréttastofan birti í nótt myndir af korvettunni þar sem hún lá sokkin við bryggju í Benghazi.Úkraínumenn eru farnir að ráðast að Rússum víðar en áður. Þeir réðust á rússneskt flutningaskip á Eystrasalti á laugardag.Sendinefnd Sameinuðu þjóðanna lýsti miklum áhyggjum af árás Úkraínumanna á rússnesku skipin. Hún sagði að Líbía mætti ekki ve
Sökktu einu rússnesku skipi og löskuðu annað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar