Dofri Eysteinsson hefur rekið verktakafyrirtækið Suðurverk í tæpa sex áratugi, eða frá árinu 1967. Í fyrsta þætti útvarpsþáttanna Iðnaðarþjóðar rifjar Dofri upp að hafa ratað í sæti vinnuvéla barnungur, hvernig hann festi kaup á sinni fyrstu gröfu og segir frá vexti Suðurverks í gegnum áratugina.„Þeir dagar koma að ég stekk upp í vél,“ segir Dofri sem er 79 ára í dag og starfar enn hjá Suðurverki. „Ég er enginn skrifstofumaður.“Þátturinn fjallar um Moldarmafíuna svokölluðu, hóp stórtækra jarðvinnuverktaka í kringum aldamótin. Dofri Eysteinsson var meðlimur í hópnum sem hét í upphafi Klúbbur jarðvinnuverktaka.Hópurinn er til enn í dag en hefur þó tekið talsverðum breytingum. Hann heitir nú Mannvirki – Félag verktaka og er starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins. Í dag eru stjórnarmenn í