Karlmaður sem hefur í yfirheyrslum játað að hafa lagt til tveggja karlmanna með hníf með þeim afleiðingum að annar lést og hinn særðist lífshættulega ber því við að hafa óttast um öryggi sitt dagana á undan. Hann segist hafa sætt handrukkun og í framhaldinu verið sagt að flytja inn fíkniefni frá Taílandi. Ekkert hafi orðið af innflutningnum.