Kínverska bílaframleiðandanum BYD hefur verið bannað að selja jeppann Ti7 innan Evrópusambandsins vegna líkinda hans við Land Rover Defender.Bannið var úrskurðað af dómstóli í Hollandi eftir að Jaguar Land Rover (JLR) höfðaði mál gegn fyrirtækinu fyrr á árinu vegna meintra brota á hugverkaréttindum.Um er að ræða bráðabirgðaúrskurð sem tekur gildi einni viku eftir að hann var kveðinn upp á föstudag. The Guardian greinir frá.„Í þessari flýtimeðferð kemst dómari, sem fjallar um bráðabirgðaráðstafanir, að þeirri niðurstöðu að Ti7 brjóti gegn hönnunarréttindum Jaguar Land Rover innan Evrópusambandsins,“ segir í úrskurði héraðsdómstólsins í Haag. „Einkennandi og sérkennandi þættir hönnunarinnar má sjá í BYD Ti7.“Dómstóllinn bannaði BYD einnig að framleiða bílinn í nýrri verksmiðju fyrirtækisins