Danska ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku áform um að Danmörk, Austurríki, Holland, Þýskaland og Grikkland ætli í sameiningu að opna fyrstu brottvísunarstöðina í Rúanda á næsta ári. Gert er ráð fyrir að 100 einstaklingar geti dvalið þar hverju sinni, en hvort land fyrir sig mun hafa 20 pláss til umráða.Danska ríkisútvarpið greinir frá. Danska brottvísunarstofnunin hefur tilkynnt 1.078 einstaklingum að þeir hafi ekki lengur leyfi til að vera í landinu og verði að yfirgefa það. Algengustu ástæður þess að fólki er vísað úr landi eru einkum dómsuppskurðir og synjun um alþjóðlega vernd. Þá eru einnig dæmi um að fólki sé gert að yfirgefa Danmörku ef atvinnu- eða dvalarleyfi hafa runnið út eða verið felld úr gildi, eða vegna Dyflinarreglugerðarinnar.Alls hafa 365 einstaklingar fengið synjun um a