Sex féllu í á í Suðvestur-Finnlandi í gærkvöld þegar burðarstrengur í hengibrú slitnaði og brúin snérist á hliðina.Finnska ríkisútvarpið segir að fólkið hafi komist upp á árbakkann af sjálfsdáðum. Enginn slasaðist alvarlega en samkvæmt björgunarfólki á vettvangi var fólkið kalt eftir volkið.Hengibrúin er fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og liggur yfir ána Aura í borginni Lieto. Átta voru á hengibrúnni þegar slysið átti sér stað. Lögreglan í Suðvestur-Finnlandi rannsakar slysið, en orsakir þess eru óþekktar.Brúin var yfirfarin síðast í júní 2025. Sú skoðun leiddi í ljós alvarlegar skemmdir á handriðum við upphlaðinn árbakka og mælt var með viðgerðum. Viðgerðunum lauk í síðustu viku en síðast voru gerðar umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir á brúnni fyrir sex árum.