Árás á rússneskt herskip í líbískri höfn

Sprengingar urðu um borð í rússnesku skipi í sjóherstöð í Benghazi í Líbíu í morgun. Yfirvöld í austurhluta landsins, sem kalla sig Ríkisstjórn þjóðarstöðugleika, telja að drónaárás hafi verið gerð á skipið.Skipið hafði viðkomu í Beghazi til að taka eldsneyti og birgðir áður en það ætlaði að halda för sinni áfram til Rússlands. Ríkisstjórnin hefur ekki gefið neinar upplýsingar um gerð skipsins eða heiti þess enn sem komið er.Breska ríkisútvarpið segir gervihnattamynd Planet Labs PBC sýna eld um borð í rússnesku herskipi í höfninni í morgun. Þá sýni aðrar gervihnattamyndir frá bandaríska greiningarfyrirtækinu Vantor myndir af rússneska skipinu sem teknar voru með sólarhrings millibili af skipinu en á myndinni sem tekin var í dag virðist sem skipið sé sokkið.BBC segir skipið heita Merkury og
Árás á rússneskt herskip í líbískri höfn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar