Virði innihalds jóladagatala er oft minna en verðið gefur til kynna. Neytendur gætu átt rétt á endurgreiðslu ef varan stendur ekki undir væntingum.Það er af sem áður var þegar eina jóladagatalið sem var í boði var Lions-súkkulaðidagatalið. Núorðið fæst nánast allt milli himins og jarðar í formi dagatals, bæði fyrir börn og fullorðna. „Ég held að það sé orðin einhver spenna fyrir fólk, að hafa eitthvað spennandi í desember,“ segir Karen Ómarsdóttir, afgreiðslukona í Nespresso. „Við erum búin að vera með dagatal í mörg ár og það eru alltaf að vaxa vinsældir á því.“Kaffidagatal Nespresso seldist strax upp þegar það kom út í byrjun mánaðar. Karen bendir á að dagatalið innihaldi ekki bara kaffi heldur einnig stóran glaðning á aðfangadag.Aðalheiður Ragnarsdóttir, verslunarstjóri í Hagkaup Smáral