Halldór Þorgeirsson, formaður loftslagsráðs, segir að minni þörf sé á samþykktum á COP31, þar sem áherslan sé að færast frá samstöðu ríkja yfir í aðgerðir heima fyrir.Hann bendir á að stór áfangi hafi náðst á ráðstefnunni 2015 þegar Parísarsamningurinn var undirritaður og síðan þá hefur náðst samstaða um útfærslu á þeim samningi á við framkvæmd og viðskipti með losunarheimildir.Áherslan sé núna að færast í aðgerðir heima fyrir og hvernig sé hægt að ná meiri árangri með samstarfi.Engin lokasamþykkt var undirrituð á COP31, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem staðið hefur yfir í Antalíu í Tyrklandi undanfarna daga. Það hefur aðeins gerst tvisvar síðan ráðstefnan var fyrst haldin fyrir rúmum 30 árum. OLÍURÍKIN EINSTRENGINGSLEG Halldór segir olíuríkin hafa verið einstrengingsleg og að