Garðplöntustöðin Nátthagi í Ölfusi er í eigu Ólafs Sturlu Njálssonar. Hann ræktar fjölbreyttar tegundir af trjám og runnum með góðum árangri og svo er hann líka með mikið úrval af alls konar eplatrjám sem hann hefur gróðursett í landið hjá sér.„Ég bjóst ekki við því að það myndi ganga svona vel en nú eru komin fimmtán ár í þessum reit sem við stöndum í hér. Hér voru gróðursettar um 120 eplasortir og allar komu þær frá Finnlandi,” segir Ólafur.Garðyrkjumaður í Ölfusi hefur náð ótrúlega góðum árangri í ræktun á eplum utandyra. Hann er með hundruð eplatrjáa sem gefa mikla uppskeru og á sumum þeirra eru enn epli í frostinu.En hverjum hefði dottið í hug að það væri hægt að rækta epli á Íslandi og hvað þá úti?„Veistu það, þegar ég kenndi í Garðyrkjuskólanum 1985 til 1994 þá sleppti ég því algjör