Forstýra Kvennaathvarfsins óttast að nýtt framfærsluviðmið dómsmálaráðuneytisins fyrir umsækjendur dvalarleyfis og ríkisborgararétts geti orðið til þess að konur geti ekki losnað úr ofbeldissamböndum. Viðmiðið gæti hækkað um meira en 200%.Til þess að fá dvalarleyfi eða íslenskan ríkisborgararétt þurfa umsækjendur að sýna fram á trygga framfærslu. Dómsmálaráðuneytið vill hækka þá fjárhæð sem viðkomandi þarf að hafa í tekjur.Hækkunin er mest fyrir einstæða foreldra með tvö börn, eða 208%, úr um það bil 260 þúsund krónum á mánuði í ríflega 800 þúsund, fyrir skatt.„Við getum bara ekki séð að ein einasta kona sem hefur komið inn til okkar af erlendum uppruna geti staðist þessi viðmið og fái þar af leiðandi dvalarleyfi,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Oft séu