Flókið verður að komast til botns í því hver stóð að baki netárás á vefhýsingarfyrirtækið 1984 í liðinni viku, segir forstöðumaður CERT-ÍS. Málið sé á borðum sveitarinnar og ríkislögreglustjóra og til rannsóknar hvort hæfur glæpahópur eða ríkisstuddur ógnarhópur hafi staðið að baki henni.Í tilkynningu frá fyrirtækinu í gær kom fram að margt benti til þess að markmið árásarinnar hefði verið að taka niður vefsíður sem styðja málstað Palestínu. Formaður félagsins Ísland-Palestína sagði í hádegisfréttum að vefsíða félagsins væri líklega ónýt og telur árásina hafa verið árás á tjáningarfrelsið.„Þetta er í rauninni bara eitt af því sem við erum að skoða. Jú, við höfum fengið gögn sem geta bent til þess og í raun er það bara eitt af mörgu sem við erum að skoða þessa stundina,“ segir Magni Sigurðs