Undanfarið hafa fréttir um brot sem karlar fremja gegn konum setið í mér. Það eru helst afleiðingar slíkra brota – eða öllu heldur skorturinn á þeim – sem láta mér fallast hendur. Eftir hið eiginlega sjokk sem felst í því að lesa fréttir um glæpi karla gegn kynsystrum mínum kemur reiðin, sorgin, hræðslan og óþægilegi léttirinn að vera ekki fréttaefnið. ...