Rússneskt flutningaskip dregið út úr finnskri lögsögu

Rússneska flutningaskipið Sparta II sem gerð var drónaárás á á Finnlandsflóa í gærmorgun, hefur verið tekið í tog. Til stendur að draga skipið í rússneska lögsögu. Eldur kviknaði í skipinu eftir drónaárásina og slökkvistarf hefur staðið fram eftir degi í dag. Finnska strandgæslan greinir frá því að hitamyndavélar sýni enn þá mikinn hita í gámum á skipinu en ástandið hafi verið metið nógu stöðugt til að setja skipið í tog. Áhöfnin var flutt frá borði síðdegis í gær. Finnska ríkisútvarpið greinir frá því að einn úr henni hafi slasast í árásinni.Skipið er í eigu fyrirtækis sem rússneska varnarmálaráðuneytið á og grunur leikur á að það hafi verið notað til að flytja vopn. Rússnesk yfirvöld hafa ekkert viljað gefa upp um farminn.
Rússneskt flutningaskip dregið út úr finnskri lögsögu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar