Minnst þrjár íslenskar vefsíður sem lýsa yfir stuðningi við málstað Palestínumanna voru eyðilagðar í umfangsmikilli netárás á íslenska hýsingarfyrirtækið 1984. Þar á meðal er vefsíða Félagsins Ísland-Palestínu, sem gæti verið ónýt að sögn formanns félagsins. Árásin var gerð í síðustu viku og varð fyrirtækið til þess að stöðva alla þjónustu sína. Vísbendingar benda til þess að sérstaklega hafi verið ráðist...