Reykjavíkurborg óskar eftir 100 heyböggum til kaups

Reykjavíkurborg auglýsti í síðasta Bændablaði eftir 100 heyböggum til kaups frá bændum. Auglýsingin hefur vakið nokkra athygli en baggana á að nota til að skreyta torg borgarinnar á aðventunni.Óskað er eftir því að baggarnir verði afhentir í byrjun desember. Eftir á að koma í ljós hvort bændur eigi nóg af böggum til að hlaupa undir bagga með Reykjavíkurborg. Hver heybaggi er 20 til 25 kíló að þyngd.Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, er ánægður með áhuga borgarinnar á baggakaupum.„Heybaggar gefa auðvitað alltaf góðan ilm og hlýju í umhverfinu auk þess sem þeir minna okkur á sveitina sem öllum þykir vænt um. Það er nú kannski ráð að nefna samt að það er betra að þeir verði ekki fyrir miklum veðuráhrifum. Það fer ekki vel með bagga að láta rigna á þá.Þannig að mín skilaboð eru kan
Reykjavíkurborg óskar eftir 100 heyböggum til kaups

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar