Eldur logaði í húsbíl á Sævarhöfða

Eldur logaði í húsbíl á Sævarhöfða í Reykjavík í dag. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um eldinn klukkan 12:40. Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu, segir töluverðan reyk hafa borist frá húsbílnum og að eldur hafi verið inni í honum. Enginn var í bílnum þegar eldurinn kom upp og enginn slasaðist. Slökkvistarf tók stuttan tíma. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar eldsupptök. Hjólhýsabyggð við Sævarhöfða. Myndin var tekin í september 2026.RÚV / Ragnar Visage
Eldur logaði í húsbíl á Sævarhöfða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar