Skólahald hófst á ný í Grindavík í haust, í fyrsta sinn frá því að bærinn var rýmdur í nóvember fyrir þremur árum. Systkinin Mía, tíu ára, og Pétur, átta ára, voru að búa sig undir að labba í skólann þegar fréttastofa hitti þau snemma morguns.Systkinin eru nýflutt heim frá Bandaríkjunum og voru því ekki á landinu þegar eldsumbrotin hófust. „Við horfðum bara á eldgosið í sjónvarpinu í Bandaríkjunum.“En hvernig fannst þeim þá tilhugsunin um að flytja til Grindavíkur? „Við vorum bara spennt að flytja og við vorum ekkert hrædd.“Þau æfa viðbragð við mögulegu eldgosi reglulega í skólanum. „Ef við erum komin í skólann og það kemur rýming þá erum við búin að vera að æfa hvernig við rýmum.“Eftir skóla æfa þau íþróttir, ekki í bænum þó, þar sem íþróttahúsið er mikið skemmt eftir jarðhræringarnar.