Björgunarsveitir í Reykjanesbæ og Kópavogi voru kallaðar út í morgun vegna þakplötu og klæðningar sem hafði losnað. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í þrjú útköll vegna hvassviðris í nótt.Björgunarsveitir í Reykjanesbæ og Kópavogi voru kallaðar út í morgun vegna þakplötu og klæðninga sem hafði losnað. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í þrjú útköll vegna hvassviðris í nótt.Á Keflavíkurflugvelli voru snarpir vindstrengir og landgöngubrýr teknar úr notkun milli klukkan tvö í nótt og sjö í morgun, og því töluverð röskun á millilandaflugi. Þá urðu seinkanir á innanlandsflugi í morgun. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir útköllin ekki hafa verið fleiri vegna veðurs. Gular veðurviðvaranir vegna suðaustan hvassviðris eða storms eru í gildi fyrir höfuðborgarsvæðið, Suður