Þann 18. nóvember 1626 var Maffeo Barberini snemma á fótum. Eða, nei, ég veit ekkert hvort hann var snemma á fótum. Kannski svaf hann þvert á móti út þennan morgun því hann vissi að dagurinn yrði langur. Og hann ansaði ekki lengur nafninu Maffeo Barberini, nei, nú var hann ávarpaður Urbano, eða Urbanus við hátíðleg tækifæri, upp á latínu. Raunar...