Sigbúnaður gæslunnar virkar

Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa nú fulla hífingargetu á sjó og lítið skerta á landi. Hífingarspil í þyrlu Landhelgisgæslunnar bilaði fyrir tveimur vikum. Sigbúnaður var ekki notaður í neinni af þyrlum gæslunnar á meðan bilunin var greind. Á meðan var viðbragðsgeta gæslunnar skert í þeim verkefnum sem kröfðust hífinga. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir viðgerð lokið. Tæknilega virki búnaðurinn eins og hann eigi að gera. Hann var prófaður á föstudag en það hafa þó ekki allar þyrluáhafnir reynt á hann síðan.Vonast er til þess að viðbragðs- og hífingargeta verði orðin full og óskert bæði á sjó og landi á næstu dögum. Aukið viðbragð var í útköllum á meðan sigbúnaðurinn virkaði ekki og Danir og aðrar samstarfsþjóðir til taks ef þörf hefði krafið. Úr þessu verður dr
Sigbúnaður gæslunnar virkar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar