Að minnsta kosti fjórir Palestínumenn hafa verið drepnir í árásum Ísraelshers á Gaza, þrátt fyrir vopnahlé sem tók gildi í október í fyrra. Á sama tíma versnar mannúðarástandið á svæðinu vegna vetrarveðurs og flóða. Þrír Palestínumenn létu lífið þegar ísraelskur dróni réðst á sendibíl sem var að flytja matvælaaðstoð til fólks á vergangi í Tal al-Hawa-hverfinu í Gaza-borg í gær....