Gular veðurviðvaranir eru í gildi fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð og miðhálendið. Viðvaranirnar gilda fram á hádegi og þar til klukkan 14:00 við Breiðafjörð og til klukkan 18:00 á miðhálendinu. Veðurstofan varar við suðaustan hvassviðri eða stormi sunnan- og vestanlands fram eftir degi.Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, t.d. nærri Eyjafjöllum, á Reykjanesi, við Esju og Hafnarfjall og á Snæfellsnesi. Vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi.Nánari upplýsingar má finna á vef Veðurstofunnar. VEÐURHORFUR Á LANDINU Í DAG Suðaustan 13-23 m/s, hvassast í vindstrengjum á Suður- og Vesturlandi. Víða rigning, en þurrt um landið norðaustanvert. Dregur úr vindi eftir hádegi. Hiti víða 5 til 10 stig þegar kemur fram á da