Eldur logar enn um borð í rússneska flutningaskipinu

Finnski herinn telur líklegt að Úkraínumenn standi að baki árásinni á rússneska flutningaskipið Sparta 2 á Finnlandsflóa í gærmorgun. Stjórnvöld í Úkraínu hafa ekki tjáð sig um árásina og enginn hefur enn lýst yfir ábyrgð á henni.Áhöfn skipsins var flutt frá borði í gær en ekki hefur verið greint frá því hvort einhver sé slasaður. Þá hefur heldur ekki verið upplýst um hvers konar farmur er um borð eða hvort einhver sprengihætta sé til staðar. Yfirmaður finnsku strandgæslunnar, Joni Sjöberg, segir í viðtali við finnska ríkisútvarpið að til standi að frysta gámana um borð í skipinu þegar búið er að ráða niðurlögum eldsins. Síðan verði skipið flutt úr finnskri lögsögu.Finnski forsætisráðherrann Petteri Orpo sagði í gær í færslu á X að stríðið væri að færast í næsta nágrenni Finnlands. Hann sa
Eldur logar enn um borð í rússneska flutningaskipinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar