Lögreglubíll.RÚV / Sölvi AndrasonLögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í útkall í gærkvöld eða nótt vegna tilkynningar um hávaða innandyra. Hávaðinn reyndist vera vegna æstra tölvuleikjaspilara, sem höfðu misst sig í tölvuleiknum Among us, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar. Tölvuleikjaspilararnir reyndust þó ekki hafa unnið neitt til saka með æsingi sínum.Mikið hvassviðri var í borginni í nótt og lögregla fékk tilkynningu um bárujárnsplötur sem voru farnar af stað í óveðrinu í Hafnarfirði eða Garðabæ. Þá var einnig tilkynnt um foktjón vegna óveðurs í Kópavogi eða Breiðholti.