Sjúklingum á líknardeildum í Póllandi verður veittur réttur til að fá heimsókn frá gæludýrum sínum samkvæmt lögum ef lagabreytingar um réttindi sjúklinga verða samþykktar á pólska þinginu.Pólska ríkisútvarpið greinir frá því að slíkar heimsóknir hafi fram til þessa verið leyfðar á sumum stofnunum án þess að lagalegur réttur til heimsókna gæludýra hafi verið tryggður. Neðri deild pólska þingsins, Sejm, samþykkti breytingartillögu á lögum um réttindi sjúklinga á fimmtudaginn. Samkvæmt breytingartillögunni geta líknardeildir sett sínar eigin verklagsreglur um heimsóknir gæludýra til eigenda sinna, að teknu tilliti til hreinlætis, öryggis sjúklinga og velferðar dýranna.Frumkvæðið að lagabreytingunni kom frá læknum sem sinna dauðvona sjúklingum. Þeir veittu því athygli að það bætti andlega líða