Yevhenii Khmara varnarmálaráðherra Úkraínu segir að það geti tekið Rússa nokkra mánuði og allt upp undir ár að gera við Krím-brúnna eftir árásir Úkraínuhers á brúnna.Kyiv Independent segir að Khamara hafi greint frá þessu á fundi með Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta og varnarmálaráðherra Breta, Wes Streeting, sem var í heimsókn í Kyiv í Úkraínu í gær.Hluti Krím-brúarinnar hrundi niður í sjó og það hefur hindrað för skipa undir brúnni. Rússnesk stjórnvöld eru því að kanna hvernig hægt sé að fjarlægja rústirnar sem hrundu í sjóinn og gera við brúnna að nýju.Zelensky sagði á fundinum að árásirnar á Krím-brúna hefðu verið svar Úkraínumanna við 109 árásum Rússa á brýr í Úkraínu.Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur haldið því fram að Krím-brúin hafi ekki verið notuð fyrir herflutninga og segir