Google mapFjórir fórust og 162 eru slasaðir eftir mikið óveður í Rio Grande do Sul-ríki í Suður-Brasilíu. Óveðrið hefur geisað í 30 sveitarfélögum í ríkinu undanfarna daga.Bærinn Tupanciretã varð fyrir miklu tjóni og eina sveitafélagið sem tilkynnti um mannfall. Öllum íbúum Tupanciretã, um 20.000 manns, var gert að yfirgefa heimili sín áður en óveðrið skall á. Margir íbúar misstu allar eigur sínar í óveðrinu en um 8.000 heimili og opinberar byggingar í bænum eyðilögðust. Vindhraði í óveðrinu mældist mestur um 32 metrar á sekúndu.Ríkisstjórinn Eduardo Leite hefur úthlutað um 1,2 milljónum bandaríkjadala til enduruppbyggingar í ríkinu.