Fyrirhugað verkfall flugumferðarstjóra gæti haft víðtæk áhrif

Næstum öllum flugferðum verður aflýst í Belgíu á mánudag eftir að tilkynnt var um að flugumferðarstjórar ætli að taka þátt í verkfalli gegn aðhaldsaðgerðum stjórnvalda.Fyrirtækið Skeyes sér um flugumferðarstjórn í landinu og flugumferðarstjórar þess verða ekki við störf frá klukkan 07:00 að 21:00 þennan dag. Án flugumferðarstjóra geta engar flugvélar haldið áætlunum sínum, en lágmarksþjónustu við öryggistengd flug og neyðarflug verður þó sinnt. Talið er að verkfall flugumferðarstjóra geti raskað ferðaáætlunum þúsunda flugfarþega.Fjöldi verkfalla hefur verið í Belgíu undanfarna mánuði. Með verkföllunum er launafólk að mótmæla tilraunum forsætisráðherrans Barts De Wevers til að draga úr miklum fjárlagahalla, en hann hefur boðað sparnaðaraðgerðir upp á tíu milljarða til að reyna að draga úr h
Fyrirhugað verkfall flugumferðarstjóra gæti haft víðtæk áhrif

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar