Sprengingar heyrast í Kaliningrad héraði

Sprengingar hafa heyrst og tilkynnt hefur verið um flug dróna nærri rússneskri flotastöð í Kaliningrad-héraði í kvöld. Úkraínski miðillinn Kyiv Independent greinir frá. Kaliningrad er rússneskt landsvæði milli Litáens og Póllands, aðskilið frá öðrum hlutum Rússlands.Ekki er ljóst hvort árásir hafi beinst að flotastöðinni eða hvort hernaðarmannvirki hafi skemmst.Á samskiptamiðlinum Telegram var tilkynnt um nokkrar sprengingar, hljóð úr drónum og rússneskar loftvarnaraðgerðir nærri hafnarborginni Baltiysk.Fréttin verður uppfærð
Sprengingar heyrast í Kaliningrad héraði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar