„Ég sótti um Erasmus-styrk og kom til Íslands í ágúst 2017 í fyrsta sinn á ævinni. Ég kunni varla neina íslensku og talaði hana lítið,“ segir Lea Debora Pokorny, nýdoktor í sagnfræði við Háskóla Íslands, sem í októberlok varði ritgerð sína um bóka- og handritagerð á Íslandi á ofanverðri 14. öld.