Jólaljósin tendruð á Ráðhústorgi

Jólasveinarnir voru óvenju snemma á ferðinni á Akureyri í dag. Þeir vildu nefnilega ekki missa af því þegar ljósin voru tendruð.Fjölmargir, ungir sem aldnir, lögðu leið sína í miðbæinn til að berja jólasveinana augum með góðgæti í poka. Enn þá er tuttugu og einn dagur þar til þeir koma til byggða.Þá var einnig jólaþorpið á torginu formlega opnað en það samanstendur af níu húsum sem verða opin um helgar fram að jólum.Lúðrasveit Akureyrar og barnakór Akureyrarkirkju sáu til þess að allir færu heim í hátíðarskapi og þá kíktu ýmsar furðuverur úr Skilaboðaskjóðunni á gesti og gangandi, en leikritið verður frumsýnt í gamla Samkomuhúsinu á Akureyri á næstunni.Bæjarstjóri Akureyrar, Berglind Guðmundsdóttir, flutti stutt ávarp. Það gerði Erik Vilstrup Lorenzen einnig en hann er sendiherra Danmerkur
Jólaljósin tendruð á Ráðhústorgi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar