Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur þótt það hafi neytt hveitis sem innihélt mögulega myglueitur, að mati deildarstjóra matvæladeildar Matvælastofnunar, MAST.Matvælastofnun varar við hveiti frá danska fyrirtækinu Valsemöllen A/S. Það hefur verið flutt inn og selt undir þremur vörumerkjum. Þau eru Kornax, First Price og Euroshopper.Innköllunin nær til hveitis þar sem best fyrir dagsetning var í september.Katrín Guðjónsdóttir, deildarstjóri matvæladeildar MAST, segir myglueitur flokk efna sem myndist náttúrulega úr myglusveppum sem eru til staðar í korni.„En við aðstæður þar sem sveppurinn nær sér á strik, eins og til dæmis ef það er of mikill raki og þær aðstæður sem hafa verið þarna í Danmörku, þá getur magn þessara efna orðið talsvert mikið.“Katrín tekur fram að í þessu tilfelli hafi myglueit