Ýmis tæki og tól voru notuð til að æfa rústabjörgun hjá björgunarsveitum landsins í dag. Björgunarfólk skreið í gegnum myrk göng og leitaði fólks með hjálp myndavéla. Markmiðið með æfingunni er að efla viðbragðsgetu björgunarsveita.Meðal annars var æfð hljóðleit og myndavélarleit.Sólveig Þorvaldsdóttir, stjórnandi íslensku alþjóðasveitarinnar, segir að engin útkallshæf rústabjörgunarsveit sé starfandi á Íslandi.„Hins vegar hefur verið til ákveðin þekking. En það er ákveðinn munur á að hafa þekkingu og að vera útkallsfær í alþjóðastarf. Til þess að vera útkallsfær í alþjóðastarf þarf maður að uppfylla ákveðin skilyrði og maður þarf að fara í gegnum vottun. Og það er eitt af því sem við erum að undirbúa núna, árið 2029 ætlum við að fara í gegnum vottun.“