Sjálfvirkt brunavarnakerfi á skíðasvæði í Kína fór heldur betur fram úr sér þegar það túlkaði mynd af logum á stafrænu skilti sem raunverulegan eld og sprautaði vatni yfir heilan matsöluskála. Atvikið átti sér stað 19. nóvember á Wanlong-skíðasvæðinu í Zhangjiakou. Myndskeið af atvikinu hefur farið eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum og sýnir hvernig vatnsbuna úr slökkvikerfinu skellur á...