Nýr veruleiki blasir við í netöryggi með tilkomu gervigreindar, segir Magni Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, netöryggissveitar Íslands. Umfangsmikil tölvuárás var gerð á vefhýsingarfyrirtækið 1984 í vikunni með þeim afleiðingum að mörg þúsund vefsíður hafa legið niðri og ekki verið hægt að senda tölvupósta. „Þetta er árás sem undir eðlilegum kringumstæðum ætti að taka vikur en með hjálp gervigreindar gerist á þessum ógnarhraða. Í rauninni á nokkrum klukkustundum. Og það er svolítið það sem við erum að sjá í dag. Nýr veruleiki. Hver hraðinn verður gríðarlega mikill og árásir verða víðtækari með gervigreind“Ekki er búið að leggja mat á tjón en truflanir hafa verið á þjónustu fyrirtækisins meðan verið er að greina umfang árásarinnar og tilgang. Það hafi færst í aukana erlendis að slíkar árá