Áhöfn rússnesks flutningaskips sem varð fyrir drónaárás á Finnlandsflóa í morgun er að yfirgefa skipið og fara í björgunarbáta. Eldur kviknaði um borð eftir árásina. Eftir rýmingu hefjast slökkvistörf. Einnig er verið að undirbúa aðgerðir vegna hugsanlegs olíuleka frá skipinu.Finnski herinn greindi frá því í morgun að drónaárás hefði verið gerð á flutningaskipið Sparta II á alþjóðlegu hafsvæði á Finnlandsflóa suðvestur af Helsinki. Finnlandsflói liggur inn úr Eystrasalti, milli Finnlands í norðri og Eistlands og Rússlands í suðri.Skipið rak síðan inn í finnska lögsögu. Það var á leið frá Pétursborg til Kalíníngrad, hólmlendu Rússa við Eystrasaltið.Samkvæmt vefsíðunni Opensanctions sætir það refsiaðgerðum bæði í Úkraínu og Bandaríkjunum. Skipið er í eigu fyrirtækis sem rússneska varnarmálar