Tölvuþrjótarnir sem réðust á íslenska vefhýsingarfyrirtækið 1984 ehf. virðast hafa haft það að markmiði að eyðileggja vefsíður sem sýna Palestínu stuðning. Þeim tókst að skemma sjö slíkar vefsíður áður en fyrirtækinu tókst að stöðva aðgerðir þeirra. Þetta segir Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri 1984, í samtali við Vísi. Hann telur að skemmdir á þessum vefsíðum séu líklega eina beina tjónið sem árásarmennirnir...