Draga úr þjónustu á ákveðnum leiðum til að geta bætt í annars staðar

Framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins segir breytingar á leiðakerfi Strætó minniháttar í stóra samhenginu. Ferðirnar sem felldar verði niður séu lítið notaðar og geri að verkum að hægt sé að bæta þjónustu annars staðar.„Við fórum í handtalningar, bara töldum farþega um borð meðal annars og byggðum þetta líka á reynslu okkar sérfræðinga. Þarna sáum við tækifæri til þess að breyta þjónustu þannig að við gætum náð fram sparnaði. Þarna væri í raun ekki þörf á þessari þjónustu sem að skapar okkur þá svigrúm til að auka þjónustuna. Heilt yfir er þjónustan að aukast heilmikið,“ segir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins.Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. voru stofnaðar í september í fyrra. Félagið tók við rekstri strætisvagna 1
Draga úr þjónustu á ákveðnum leiðum til að geta bætt í annars staðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar