Drónaárás var gerð á rússneskt flutningaskip á Finnlandsflóa suðvestur af Helsinki í morgun. Finnski herinn greindi frá þessu í tilkynningu og sagði árásina hafa verið gerða á alþjóðlegu hafsvæði.Skemmdir urðu á skipinu og eldur kviknaði um borð eftir árásina. Finnska strandgæslan stýrir björgunaraðgerðum og aðgerðum til að koma í veg fyrir umhverfisspjöll, að því er segir í tilkynningunni.Samkvæmt finnska ríkisútvarpinu, YLE, setti herinn tímabundið bann við flugi yfir svæðinu og takmarkanir á skipaumferð. Að sögn yfirvalda stafar ekki hætta af skipinu.Finnlandsflói liggur inn úr Eystrasalti milli Finnlands í norðri og Eistlands og Rússlands í suðri. Skipið, Sparta II, var á leið frá St. Pétursborg til Kalíníngrad.Það er í eigu fyrirtækis sem rússneski herinn á og sætir refsiaðgerðum bæði