Framkvæmdastjóri vefhýsingarvefsins 1984 ehf. segir vinnu ganga vel við að „þrífa eftir sóðana“ sem gerðu umfangsmikla árás á kerfi fyrirtækisins og vonast hann til þess að opna fyrir þjónustu sem fyrst. Hann segir áherslu árásaraðila virðast hafa verið að skemma síður sem tengjast Palestínu með einhverjum hætti.