Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Nikulási Snorrasyni. Hann er 72 ára. Nikulás er rúmlega 170 sentímetrar á hæð og þéttvaxinn. Ekkert hefur spurst til hans síðan 10. nóvember. Hann var klæddur í grænan þunnan sumarjakka, gallabuxur og strigaskó og var með bláan bakpoka þegar hann fór að heiman. Í tilkynningu lögreglu segir að líklegt sé að hann haldi til í Reykjavík, einhvers staðar í Hvalfirði eða á Akranesi. Þeir sem hafa vitneskju um hvar Nikulás gæti hafa haldið sig undanfarna daga eða hvar hann er staddur eru vinsamlega beðnir um að hringja í 112 eða senda tölvupóst á 0776@lrh.is.Ekkert hefur spurst til Nikulásar síðan 10. nóvember.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu