Það getur varðað við hegningar- og persónuverndarlög að dreifa stafrænu efni af fólki í aðstæðum sem ættu að vera einkamál óháð því hvort þeir sem á myndefninu séu hafi sýnt af sér óviðeigandi hegðun. Þetta segir María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík.Myndefni af starfsfólki Hagaskóla í Reykjavík, þar sem það virðist eiga í ástaratlotum á bak við sandblásið gler, hefur gengið manna á milli í vikunni.María kveðst ekki hafa séð myndefnið en hvetur fólk til að hugsa sig um áður en það deilir myndefni af einkalífi annarra. Hún segir aðstæður skipta máli.„Það skiptir máli hvar svona hlutir eiga sér stað og auðvitað er ýmislegt viðeigandi inni á heimilum sem er ekki viðeigandi í skólastofu eða í skólabyggingu. Það liggur í augum uppi,“ segir María.Hún segir óvið