Siglfirðingar funda með Veðurstofunni í kjölfar óveðursins

Afleiðingar óveðursins 14. október, þegar mikið tjón varð á Siglufirði, voru ræddar á fundi Siglfirðinga og Veðurstofunnar. Veðurstofan kynnti hvað spár og mælingar sýndu og hverjar afleiðingarnar hefðu verið í bæjarfélaginu. Markmiðið var meðal annars að greina hvort viðvörunarstig og orðalag á viðvörun hefði lýst nægilega vel hættunni sem skapaðist.Hafdís Huld Björnsdóttir, bæjarstjóri í Fjallabyggð, segir að aðstæðurnar sem sköpuðust hafi ekki komið Siglfirðingum sérstaklega á óvart.„Það sem við hefðum viljað sjá betur eru þessi samskipti áður. Fá nákvæmar spár og geta undirbúið okkur með viðeigandi hætti. Það er fullt af hugmyndum hvernig við viljum bæta þetta en eins og með marga hluti snýst þetta um kostnað og hvort ávinningur af mælingunum og betri veðurspám sé meiri en kostnaðurinn
Siglfirðingar funda með Veðurstofunni í kjölfar óveðursins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar