Í umræðu samfélagsins heyrast umkvartanir þess efnis að lesskilningi of margra unglinga sé ábótavant. Krakkarnir lesi varla bók lengur, heldur grúfi sig ofan í snjallsíma sína og því sé íslenskan í dauðateygjum. Mikil er ábyrgð grunnskólabarna, sé umræðan dregin saman í stórkarlalegum dráttum. En hvað með það jákvæða? Heyrum við kannski minna af því? Og hvað með íslenskukennarann – með greini?...