Vikulokin: Staðan í stjórnmálunum, húsnæðismarkaðurinn og leiðtogafundur

Kafað verður í fréttamál vikunnar í Vikulokunum sem eru á sínum stað í útvarpi og á vef strax á eftir fréttum klukkan 11:00.Í fyrsta hluta þáttarins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, vistaskipti Ingvars Þóroddssonar og náttúru- og innviðagjald. Þar eru gestir Eiríkur Björn Björgvinsson þingmaður Viðreisnar og Ingveldur Anna Sigurðardóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins.Í öðrum hluta ræða Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Páll Pálsson fasteignasali stýrivaxtaákvörðun, húsnæðismarkaðinn og fjárlög.Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum og Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði, eru gestir í þriðja hluta þáttarins. Þar verður fjallað um fund leiðtoga Rússlands, Kína og Bandaríkjanna.
Vikulokin: Staðan í stjórnmálunum, húsnæðismarkaðurinn og leiðtogafundur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar