Íslenska kokkalandsliðið er í Lúxembúrg á HM í matreiðslu og ætlar sér sigur. Ísland hefur lengi verið í fremstu röð og tvívegis unnið til bronsverðlauna á Ólympíuleikum í matreiðslu síðustu ár.Landsliðið telur sig því eiga góðan möguleika á að hampa sigri á HM að þessu sinni en veit vel hvaða pytti þarf að varast. Dómarar á svona mótum fylgjast grannt með öllum smáatriðum í eldhúsinu og dæmi eru um að einn gúmmíhanski í lífræna ruslinu hafi kostað Ísland verðmæt stig.Landsliðið hefur því æft stíft undanfarna mánuði og er eins vel undirbúið og hægt er fyrir keppni af þessum toga. Kastljós fékk að líta inn á lokaæfinguna á dögunum.