Jólasíldin komin á fötur í Neskaupstað og skilar nýjum tækjum á sjúkrahúsið

Jólasíldin er klár í Neskaupstað. Mörgum þykir síldin ómissandi á aðventunni og föturnar frá Síldarvinnslunni afla fjár til tækjakaupa á sjúkrahúsi Austfirðinga.Verkun á jólasíld hófst í lok september og síldin hefur staðið í edikblöndu í um 50 daga. Þá er komið að því að skipta henni í fötur og fylla upp með sykurblöndu. Á hverju ári eru útbúnar fjögur til fimm þúsund síldarfötur.„Það fá allir starfsmenn Síldarvinnslunnar sína síldarfötu fyrir jólin. Síðan eru líka margir sem koma að þessu fyrirtæki og fólk sem er að vinna í kringum þetta, þannig að þá fá allir sína síldarfötu,“ segir Oddur Einarsson, yfirverkstjóri í Síldarvinnslunni í Neskaupstað.Hátt í 5 þúsund fötur af jólasíld eru útbúnar hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað í ár. Uppskriftin er háleynileg og góðgerðarfélag fær fötur t
Jólasíldin komin á fötur í Neskaupstað og skilar nýjum tækjum á sjúkrahúsið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar